Lýðræði og stjórnsýsla 21 aldarinnar

Lýðræði og stjórnsýsla 21 aldarinnar:

Er ekki kominn tími til að laga stjórnsýslu landsins að breyttum aðstæðum, núverandi kerfi á betur við víkingaöld en það þjóðfélag sem við búum við í dag.


Drög að breyttu stjórnkerfi:

Kosningar sem fara fram á Alþingi verða stafrænar og opnar öllum ríkisborgurum, sett verður upp kosningavefsíða þar sem borgarar geta fræðst um þau mál sem tekin eru fyrir á Alþingi og kosið.

 Á kosningavefnum verður hægt að kjósa flokka, einstaklinga eða um einstök málefni, geta þá borgarar ráðið hversu mikinn þátt þeir taka í störfum Alþingis, einnig geta þeir hvenær sem er á kjörtímabili flutt sitt atkvæði milli flokka, stjórnmálamanna eða kosið beint um ákveðin málefni.

Að sjálfsögðu þarf að koma á móts við þá sem hafa ekki eðlilegan aðgang að vefsíðunni, setja þarf upp þjónustustöðvar stjórnsýslunar þangað sem allir borgarar geta gengið inn og fengið aðgang að rafrænu stjórnsýslunni og aðstoð við notkun hennar.

Þegar uppbyggingu þjónustumiðstöðva er lokið mætti leggja niður beina þjónustu flestra stofnanna, fólk gæti þá nálgast flest alla opinbera þjónustu á netinu eða hjá þjónustufulltrúa í þjónustumiðstöð.

 Leiðin að nýju stjórnkerfi:

 Núverandi stjórnmálamenn væru sjálfsagt margir tregir til upptöku nýja kerfissins svo að líklegast þyrfti innsprautun af nýju fólki til aðgerða, hugsa mætti sér að eftirfarandi væri góð leið:
Stofnaður er nýr stjórnmálaflokkur, mætti t.d. heita "Lýðræðisflokkurinn" , hver sem undirritar stuðningsyfirlýsingu og skráir sig í flokkinn fær úthlutað notendanafni og lykilorði. Aðal markmið flokksins yrði að sjálfsögðu alltaf að koma á breyttu stjórnkerfi eins og áður var lýst en jafnframt væri hægt að mynda stefnu um önnur mál á svipaðan hátt og áður var lýst, skráður félagi  gæti kosið um málefni eða kosið einstaka menn innan flokksins. 

Rafræn fjármál:

Á 21 öldinni hefur margt breyst, á síðustu öld tók daga og vikur að gera einföldustu hluti í banka og peningakerfum sem í dag taka millisekúndur. Mælitæki þjóðríkja hafa ekki haldið í við þessa þróun, bókhald og skattskil eru að mestu enn eins og á miðöldum. Skattskil eru í versta falli árleg en besta falli mánaðarleg og ef opinber aðili vill skoða bókhald fyrirtækis tekur það mánuði og jafnvel mörg ár.  Bókhald fyrirtækja er jafnvel orðið svo flókið með kross eignatengslum og viðskiptavild að þeir menn sem stýra fyrirtækjunum vita ekki stöðuna. Þetta útskýrir einnig afverju enginn vill kannast við að vera ábyrgur fyrir nýlegu hruni fjármálamarkaðsins, flestir vissu hreinlega ekki hvað var í gangi.
 Til að koma í veg fyrir fjármálaleg stórslys eins og það sem nýlega varð verðum við að breyta lögum um upplýsingagjöf. Þar sem nánast allar peningafærslur gerast í rauntíma gegnum kortafyrirtæki og banka finnst mér eðlileg krafa að ríkið fá afrit af öllum færslum í rauntíma. Fyrirtæki gætu þá valið um að halda bókhald í rauntíma gegnum netkerfi hjá skattstjóra eða reka sitt eigið kerfi sem myndi daglega senda uppfærslu til skattstjóra.
Með slíkar upplýsingar gæti Fjármálaeftirlitið, Ríkið og Seðlabankinn fengið rauntíma skýrslur og gögn þar sem búið væri að leysa allar flækjur og raunveruleg staða kæmi í ljós, 21 aldar upplýsingakerfi fyrir 21 aldar fjármálakerfi.

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Sæll Jarl.

(Skemmtilegra að vera undir eigin nafni þegar stórar hugmyndir eru settar fram.)

Hugmyndin um rafrænar kosningar er góð og stofnun flokks um meira lýðræði. en að mínu mati er hugmyndin um að "stóri bróðir" fái afrit af öllum greiðslufærslum í landinu ekki að mínu skapi.

Þú þarft að útfæra þessar hugmyndir betur.

kv

Sigurbjörn

Sigurbjörn Svavarsson, 9.11.2008 kl. 15:05

2 Smámynd: Jarl

Sæll Sigurbjörn,

 Ég er reyndar að birta undir eigin nafni, heiti nefnilega Jarl og er Stefánsson.

Varðandi það að senda "stóra bróður" afrit af öllum færslum þá eru margir í dag sem hafa aðgang að þessum upplýsingum, þannig er nefnilega að flestar þessara færslna fara nú þegar í gegnum Reiknistofu Bankanna.

Ef fólk hefur miklar áhyggjur mætti einfaldlega sleppa því að senda upplýsingar um einstaklinga og einungis senda upplýsingar um fyrirtækin sem kæmu að viðkomandi færslum.

 Kveðja

 Jarl

Jarl, 9.11.2008 kl. 15:38

3 identicon

Sæll Jarl.

Fyrirgefðu þetta með nafnið. Þú hefur athyglisverðar hugmyndir sem ég vildi gjarnan hvetja þig til að útfæra betur. Sérstaklega um rafrænar kosningar og skoðannakannanir. 

Hvar sjálfvirka upplýsingagjöf varðar, þá eru einstaklingar viðkvæmir og og lög um persónuvernd ströng.

kv

Sigurbjörn

Sigurbjorn Svavarsson (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 01:17

4 Smámynd: Jarl

Mér dettur svo sem fátt í hug til að bæta við þetta hugmyndafræðilega en gæti haldið langar ræður um tæknilega útfærslu.

Ef til væri óflokksbundinn maður með hreint orðspor sem þjóðin bæri traust til gæti hann sjálfsagt leitt flokk með þetta stefnu og breytt kerfinu, lýsi  hér með eftir tillögum um hver gæti sinnt þessu verkefni.

Það er nóg til af tæknimönnum eins og mér sem geta útfært þetta á öruggan hátt og myndu gefa vinnu og búnað til að hrinda þessu í gang.

Jarl, 11.11.2008 kl. 19:36

5 identicon

Sæll Jarl,

Ég er líka tæknimaður og hef áhuga á þessu málefni. Hef reyndar smíðað kannanakerfi fyrir fyrirtæki (http://www.ikon.is/ikon/content/view/31/27/lang,is/) og er það að mínu mati ákveðinn vísir að því sem hér er verið að ræða um í tæknilegu tilliti. Ég heyrði um þessa hugmynd um daginn þ.e. að hægt væri að stofna stjórnmálaflokk í þessum anda án lagabreytinga. Ég er með hugmyndir um það hvernig tryggja megi að atkvæðagreiðslur séu hafnar yfir allan vafa um íhlutun en jafnframt tryggja persónuvernd. Vil vera í sambandi.

Kveðja,

Ólafur

Ólafur Garðarsson (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jarl

Höfundur

Jarl
Jarl

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Markmið
  • Formúla
  • Gengi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband